Næsti sunnudagur er sunnudagur í föstuinngangi. Þá er sunnudagaskólinn að vanda kl.11 og messa kl.14. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar organista. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Kaffi og kleinur í safnaðarheimilinu á eftir. Verið velkomin til kirkjunnar!