Næsta sunnudag, 4.nóvember verður sunnudagaskólinn á sínum stað kl.11 og messa kl.14.

Fyrsta sunnudag í nóvember er allra heilagra messa og minnst og beðið fyrir látnum. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Kirkjukórinn leiðir söng, organisti Rögnvaldur Valbergsson, prestur Sigríður Gunnarsdóttir. Kaffi og kleinur í safnaðarheimilinu eftir messu. Verið velkomin til kirkjunnar!