Hér gefur að líta nokkur ritningarvers úr biblíunni en fermingarbörnin eiga að velja sér eitt vers til að gera að sínum einkunnarorðum á fermingardaginn. Einnig er gott að fletta spjöldum úr „Orð Guðs til þín“.

1. Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir. Fil. 4:13

2. Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Matt. 7:12

3. Ákalla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig. Sálm.50:15

4. Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Matt. 7:7

5. Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns. Sálm. 100:5

6. Drottin er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? Sálm. 27:1

7. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Sálm. 23:1

8. Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum. Sálm. 145:13b

9. Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Sálm.121:5

10. Drottin er öllum góður, og miskunn hans er yfir öllum, sem hann skapar Sálm. 145:9

11. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Sálm. 121:7

12. Drottinn, þú ert minn Guð! Ég vil vegsama þig, lofa nafn þitt! Þú hefir framkvæmt furðuverk, löngu ráðin ráð, trúfesti og sannleika. Jes. 25:1

13. Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis. Sálm. 107:1

14. Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá. Sálm. 34:8

15. Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.

16. Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur. Sálm. 16:8

17. Ég vil lofa Drottinn meðan lifi, lofsyngja Guði mínum, meðan ég er til. Sálm. 146:2

18. Ég vil lofa þig, Drottinn, af öllu hjarta, segja frá öllum þínum dásemdarverkum. Sálm. 9:2

19. Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni. Sálm. 34:2

20. Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. Sálm. 37:5

21. Gott mannorð er betra en mikill auður, vinsæld er betri en silfur og gull. Orðskv. 22:1

22. Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum. Sálm. 46:2

23. Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. Jesaja 40:29

24. Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. Jóh. 14:1

25. Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Sálm. 121:2

26. Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum. Sálm. 4:9

27. Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Jóh. 1:1

28. Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð! Sálm 31:6

29. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Sálm. 23:4

30. Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.“ Jóh. 11:25

31. Jesús sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins. Jóh 8:12

32. Jesús sagði: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“ Matt. 11:28

33. Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.“ Jóh. 14:6

34. Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut. Sálm. 143:10

35. Kærleikurinn breiðir yfir allt, trúir öllu , vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. I. Kor 13:7

36. Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun neita yður hvíld. Matt. 11:28

37. Lát engan líta smáum augum á æsku þína, en ver fyrirmynd trúaðra, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika. I. Tim. 4:12

38. Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann meðan hann er nálægur! Jesaja 55:6

39. Lítið ekki á eigin hag, heldur einnig annarra. Verið með sama hugafari sem Jesús Kristur var. Fil. 2:4-5

40. Lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans. Sálm 103:2

41. Náð mín nægir þér, þó að mátturinn fullkomnast í veikleika. II. Kor. 12:9

42. Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. Sálm. 145:8

43. Og hann sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér.“ Lúk. 9:23

44. Orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs. I. Kor 13:7

45. Óttast þú eigi, því að ég er með þér. Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með hægri hendi réttlætis míns. Jes. 41:10

46. Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, hann öðlast líf, réttlæti og heiður. Orðskv. 21:21

47. Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda. Sálm. 51:12

48. Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Jóh 3:16

49. Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða. Matt. 5:9

50. Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá. Matt. 5:8

51. Sælir eru hógværir, því að þeir munu jörðina erfa. Matt. 5:5

52. Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða. Matt. 5:7

53. Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða. Matt 5:6

54. Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna. Sálm. 17:8

55. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Sálm. 16:1

56. Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum sem leita hælis hjá honum. Sálm. 18:31

57. Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. Sálm. 86:11

58. Þakkið Drottni, því hann er góður, því miskunn hans varir að eilífu. Sálm. 107:1

59. Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð yður. Jóh. 15:14

60. Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mínum. Sálm. 119:105

61. Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. I. Kor. 13:1

62. Þú ert von mín, þú, Drottinn, ert athvarf mitt frá æsku. Sálm. 71:15

63. Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum huga þínum og af öllum mætti þínum og náunga þinn eins og sjálfan þig. Mark. 12:30-31

64. Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður – segir Drottinn – fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Jer. 29:11

65. Því að ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri hönd þína og segi við þig: „Óttast þú eigi, ég hjálpa þér!“ Jesaja 41:13

66. Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum. Sálm. 91:11

67. Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Jóh. 3:16

68. „…en Guði er enginn hlutur um megn.“ Lúk. 1:37